Fuglar og fólk á Ítalíu

kr. 990

Í þessari bók tekur lesandinn sér ferð á hendur um landið hlýja, Ítalíu, þar sem saga aldanna liggur við hvert fótmál. Taormina, Tropea, Pizzo, Matera, Rómaborg, Montepulciano, Montalcino, Cortona, Chianti, Borgo di Buggiano, Viareggio; allt eru þetta viðkomustaðir í ferðinni, en einnig vínekrur og baðstrendur í Toskana-héraði.

Vörunúmer: fuglar Flokkur:

Lýsing

Í „borginni eilífu“ er lesandinn leiddur inn í mikilfenglegar kirkjur og kapellur, höfuðstöðvar hins rómversk-katólska heims, þar sem klerkar og kardínálar, munkar og nunnur, englar og dýrlingar, gyðjur og barbarar, ferðamenn og fuglar eru í aðalhlutverkum. Þess á milli sest hann á nokkur elstu kaffihús heims þar sem páfinn „býr í næsta húsi“ og blómasalar stunda nótulaus viðskipti við elskendur frá öllum heimshornum.

Fuglar og fólk á Ítalíu lætur engan fagurkera ósnortinn. Hún er veisla í farangri þeirra sem sækja Ítalíu heim — og kærkomin leiðsögubók um eitt söguríkasta og merkasta land heims.

Frekari upplýsingar

Útgefandi

Tindur

Höfundur

Útgáfuár

2010

Efni

Kilja

Blaðsíðufjöldi

227

ISBN

978-9979-653-57-8

Stærð

130 x 210 mm

Þyngd

324 g

Umsagnir

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Fuglar og fólk á Ítalíu”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *