Valdamiklir menn út fyrir landsteinana
Fyrsta bókin í þríleiknum Valdamiklir menn eftir Jón Pálsson er nú komin út í enskri þýðingu. Serían heitir Prominent Men og fyrsta bókin The Third Case.
Bækurnar í þessum spennandi þríleik um Þórhall rannsóknarlögreglumann og samstarfsmenn hans í Reykjavík komu út þrjú ár í röð hjá Höfundaútgáfunni, sú fyrsta árið 2016. Bókunum var afar vel tekið og má vænta þess að þær fái góðar viðtökur í hinum enskumælandi heimi.
Eftirfarandi veitur bjóða bókina til sölu á ensku, bæði á prenti og sem rafbók:
Books to Read:
Prominent Men: The Third Case
Amazon:
Bækurnar er fáanlegar á íslensku á vef útgáfunnar.