Lýsing
Í þetta sinn snýst frásögn hans ekki síst um stormasöm viðskipti við konur, enda varðar þetta málefni bæði sögu og framtíð ættarinnar. Við sögu koma meðal annars fjölskrúðugur hópur forfeðra Dýrmundar, Páll postuli, Doris Day, álfar og óvættir, að ógleymdum drengstaulanum Dýrmundi skrattakolli og Strandakvendinu Ottavíu móður hans. Að venju er Dýrmundur óspar á vangaveltur og ráðleggingar um hvaðeina sem honum kemur í hug, en undirniðri býr þó alltaf eitt og hið sama — óskin um að geta snúið aftur vestur á sinn bæ.
Dýrmundur og málið með soninn er sjálfstætt framhald bókarinnar Dýrmundur og málið með veginn sem kom út 2014 og vakti verðskuldaða athygli.
Bókin fæst hjá Pennanum/Eymundsson.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.