Lýsing
Óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson hlaut einróma lof gagnrýnenda og áhorfenda, bæði á konsertflutningi verksins í Skálholti haustið 2013 og í uppfærslu Íslensku óperunnar vorið 2014. Saga Ragnheiðar Brynjólfsdóttur er harmræn ástarsaga, þar sem sterkar persónur takast á við hver aðra og örlögin um leið. Samband Ragnheiðar og Daða hefur verið líkt við söguna af Rómeó og Júlíu, en munurinn er sá að Ragnheiður og Daði voru raunverulegar persónur af holdi og blóði; þau gengu hér um grundir fyrir aðeins 350 árum síðan, áttu sínar sælu- og sorgarstundir og háðu sín innri og ytri stríð.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.